Námsbrautir
Skólinn starfrækir tvær bóknámsbrautir til stúdentsprófs:
- Á hugvísindabraut er lögð áhersla á að sérhæfa sig í tungumálum.
- Á náttúruvísindabraut er lögð áhersla á þekkingu í stærðfræði og náttúruvísindum.
Lokamarkmið hugvísindabrautar eru (auk markmiða skólans að framan) að nemendur
- hafi góða almenna þekkingu á sviði hugvísinda
- séu færir um að beita fræðilegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga, mat, úrvinnslu og túlkun
- hafi náð tilskilinni færni í þeim erlendu tungumálum sem þeir hafa lagt stund á
- séu læsir á menningu og siði viðkomandi málsamfélaga og hafi þekkingu á sögu þeirra
- séu vel undirbúnir fyrir frekara nám í hugvísindum og á öðrum sviðum fræða og lista.
Lokamarkmið náttúruvísindabrautar (auk markmiða skólans að framan) eru að nemendur
- hafi góða almenna þekkingu á sviði stærðfræði, náttúru- og raunvísinda
- séu færir um að beita vísindalegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga, mælingar, mat, úrvinnslu og túlkun
- geti fjallað um og tekið þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags
- geti nýtt kunnáttu sína í náttúru- og raunvísindum í mögulegri framtíðarþróun
- séu vel undirbúnir fyrir frekara nám, einkum í náttúru- og raunvísindum, tæknigreinum og heilbrigðisvísindum.