Nám á náttúrufræðibraut miðar að því að veita nemendum trausta undirstöðu fyrir háskólanám í raunvísinda- og náttúrufræðideildum. Áhersla á góðan stærðfræðigrunn veitir nemendum forskot í þeim áföngum sem hafa reynst erfiðastir þegar í háskóla kemur auk þess sem íslensku- og tjáningaráfangar gera nemendur fæari í að koma efni frá sér á skýran og skilmerkilegan hátt.
Nemendur sem útskrifast af málabraut Hraðbrautar eru reiðubúnir til að takast á við háskólanám á fjölmörgum sviðum, svo sem félagsvísinda-, sagnfræði-, og tungumálasviði. Mikil áhersla er lögð á þjálfun og færni í íslensku og tjáningu auk þess sem töluvert meiri stærðfræði er á málabraut í Hraðbraut en víðast annars staðar.


