Menntaskólinn Hraðbraut

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Áfangalýsing - ÍSL102

Íslenska 102 - ÍSL 102 Læsi, ritun og tjáning

 

Áfangalýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur treysti kunnáttu sína á öllum sviðum lestrar, lesi fjölbreytta texta, s.s. bókmenntatexta, ýmsa texta sem birtast í dagblöðum, tímaritum, fræði¬ritum og á Netinu. Nemendur fá þjálfun í fjölbreyttri ritun og tjáningu. Nemendur læra að meta góða málnotkun og öðlast trú á eigin málhæfni í ræðu og riti.

 

Áfangamarkmið

Nemandi

þjálfist í að auka leshraða sinn og bæta lesskilning

lesi bókmenntaverk og ýmsa aðra texta

fái tækifæri til að velja texta við hæfi í samræmi við áhuga sinn

geti beitt hugtökum bókmenntafræði í umfjöllun um bókmenntir

geti beitt ýmsum hugtökum bragfræði í umfjöllun um bundið mál

geti lesið upphátt fyrir aðra eigin texta og annarra

taki þátt í umræðum og rökræðum

öðlist sjálfstraust til að tala og/eða lesa fyrir framan aðra

öðlist sjálfstraust og öryggi í ræðustól

losi um óæskilegar hömlur og feimni í framkomu og tjáningu þar sem þörf krefur

tileinki sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar

fái tækifæri til að túlka línurit, myndir og gröf af ýmsu tagi

geti skipt eigin texta og annarra í málsgreinar, efnisgreinar og kafla

kannist við sérkenni ritmáls og talmáls

skrifi margs konar ritsmíðar í skrefum, þ.e. með ferliritun

temji sér notkun hjálpargagna við réttritun, þ.m.t. orðabækur og leiðréttingarforrit

þjálfist í notkun handbóka í ritun

geti gengið frá texta á viðunandi hátt í tölvu

fái tækifæri til að bæta kunnáttu sína í réttritun og greinarmerkjasetningu ef ástæða þykir til

 

Efnisatriði

Nemendur lesa bókmenntatexta og ýmsa aðra texta, átta sig á eðli þeirra og fá þjálfun í að fjalla um þá í ræðu og riti, túlka þá og bera saman við eigin reynslu og hugmyndaheim. Nemendur fá innsýn í nokkur grunnhugtök bókmenntafræði, s.s. tíma, umhverfi, sjónarhorn, persónulýsingar, boðskap, rím, ljóðstafi og myndmál. Nemendur kynnast fræðsluefni í hljóð- og myndformi og þjálfast í að túlka línurit, myndir og gröf; fá þjálfun í sem fjölbreyttastri ritun, t.d. ritun endursagna eftir upplestri, ritun texta um eigin reynslu og lesið efni og ritun rök¬færslutexta. Nemendur gera sér grein fyrir stöðu sinni í staf¬setningu og temja sér notkun orðabóka, handbóka og leiðbeininga um frágang og þjálfast í að semja, umsemja og endurrita texta í tölvu í samræmi við leiðbeiningar.

 

Námsmat

Í áfanganum má t.d. meta upplestur, myndrænan lestur, nákvæmnis- og leitarlestur, les¬skilning og orðaforða, einstaklings- og hópverkefni tengd bókmenntum, ritunarverkefni, staf¬setningu og greinar-merkjasetningu og almenna tjáningu og þátttöku í umræðum.