Íslenska 212 - ÍSL 212 Mál- og menningarsaga
Undanfari: ÍSL 202 Bókmenntir og málfræði
Áfangalýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á að fjalla um sögu máls og menningar frá frumnorrænum tíma til okkar daga. Nemendur kynnast nokkrum atriðum í sögu íslensks máls frá öndverðu til okkar daga, læra að lesa úr hljóðritunartáknum og kynnast helstu mállýskum á Íslandi. Nemendur kynnast norrænni goðafræði og hugmyndaheimi norrænna manna til forna auk þess sem þeir fá tækifæri til að tjá sig í ræðu og riti um efni áfangans. Nemendur kynnast helstu aðferðum við meðferð heimilda í ritun og fá tækifæri til að nota tölvu við frágang verkefna.
Áfangamarkmið
Nemandi
kannist við söguleg tengsl tungumáls og menningar
fái innsýn í meginatriði íslenskrar málstefnu
kynnist hugmyndum um tungutækni
skoði nokkur dæmi um rúnaristur
þekki dæmi um áhrif norrænnar tungu á önnur málsvæði
þekki helstu atriði í heimssögu norrænnar goðafræði
viti deili á helstu goðum í norrænni goðafræði og hlutverki þeirra, vættum og öðrum átrúnaði
kynnist nútímaljóðum sem byggjast á fornum goðsögnum eða vísa til þeirra
átti sig á leiðbeiningum um framburð
þekki helstu mállýskur á Íslandi
læri um helstu breytingar á stíl í íslensku frá upphafi ritunar til okkar daga
kynnist dæmum um uppruna og skyldleika orða
velti fyrir sér orðasmíð og merkingu
þekki íslenska nafnsiði
greini mismunandi málsnið og orðræðu við ólíkar aðstæður
ræði um og myndi sér skoðun á íslenskri málstefnu
fái tækifæri til að semja og flytja eigin hugleiðingu tengda efni áfangans með áherslu á skýra fram-sögn
fái tækifæri til að gagnrýna framsögn annarra og taka við gagnrýni á eigin framsögn
fái tækifæri til að skoða myndbönd, myndlist eða margmiðlunarefni tengt norrænum goðsögnum
skrifi ritgerð eða ritdóm um kjörbók
kynnist helstu aðferðum við meðferð heimilda í ritun
læri að byggja upp heimildaritgerð
nýti tölvutækni til að ganga frá textum til verkefnaskila, útgáfu eða birtingar á vef/neti
fái tækifæri til að kynnast söfnum og skoða listaverk sem tengjast efni áfangans þar sem því verður við komið
Efnisatriði
Fjallað verður um norræn trúarbrögð og goðsagnir, helstu æsi og ásynjur og áhrif norrænnar goða-fræði á íslenskar nútímabókmenntir. Sýnd verða dæmi um fornar rúnaristur og eldra rúnastafrófið og rifjaður upp fróðleikur um skyldleika og einkenni norrænna mála. Lesin verða textadæmi frá ýmsum tímum og vakin athygli á málfarslegum einkennum þeirra og þeirri þjóðfélagsmynd sem þau birta, uppruna og skyldleika orða, endurnýjun orðaforðans og íslenskum nafnsiðum. Nemendur lesa kjörbók og skrifa um hana ritgerð eða ritdóm og fá tækifæri til að lesa upp eigið ritverk eða annarra. Þeir kynnast og efni á sviði lista og margmiðlunar sem hæfir áfanganum.
Námsmat
Í áfanganum má t.d. meta einstaklings- og hópverkefni tengd sögu máls og menningar og ritunar-verkefni. Námsmat getur að öðru leyti byggst á þekkingu og skilningi á norrænni goðafræði og sögu og sérkennum íslenskunnar.


