Menntaskólinn Hraðbraut

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Áfangalýsing - SPÆ403

Spænska 403 - SPÆ 403 Skáldsögur og munnleg tjáning

Undanfari: SPÆ 303

Áfangalýsing

Lokið er við að fara yfir öll helstu grundvallaratriði spænskrar málfræði. Áhersla er á notkun viðtengingarháttar nútíðar og þátíðar og skildagatíðar. Orðasambönd, sem geta tekið með sér viðtengingarhátt og/eða framsöguhátt, eru tekin fyrir. Nemendur öðlast færni í réttri notkun þátíða. Stutt skáldsaga eða smásögur eru lesnar og verkefni unnin upp úr þeim. Munnleg tjáning er mikið æfð og reynt að festa í sessi virkan orðaforða. Nemendur kynna sér fjölbreyttan menningarheim hinna spænskumælandi þjóða og bera saman við sinn eigin. Æskilegt er að nemendur vinni þemaverkefni saman og kynni fyrir samnemendum sínum. Heimur Rómönsku Ameríku, bókmenntir og listir hins spænskumælandi heims eru helsta uppspretta orðaforða. Upplestur texta er æfður. Áhersla er lögð á ríkan orðaforða og nokkuð rétta málfræði.

Áfangamarkmið

Nemandi

Framburður

öðlist öryggi í framburði
geri greinarmun á suður-amerískum og spænskum framburði
hafi á valdi sínu
hrynjandi
ð-hljóð á milli sérhljóða

Orðaforði

dýpki almennan orðaforða og leggi áherslu á
menningarþætti og landshætti ýmissa landa Rómönsku Ameríku
markvissa notkun orðabóka
að tengja latneskan og germanskan orðaforða innbyrðis
að tengja saman orð og orðflokka
upprifjun og viðhald orðaforða

Málfræði

ljúki við að fara yfir grundvallaratriði spænskrar málfræði
þjálfist í notkun
þátíða framsöguháttar
boðháttar (neikvæður, jákvæður, þúun, þérun)
viðtengingarháttar (nútíð og þátíð)
skildagatíðar
persónufornafna
ser og estar í öllum tíðum og háttum
samtenginga og forsetninga sem taka með sér viðtengingarhátt

Málskilningur - hlustun

þjálfist enn frekar í að skilja mælt mál í daglegri umgengni, nánar tiltekið
skilji tilkynningar á símsvara og hátalarakerfi flugvalla
skilji aðalinntak frétta í fjölmiðlum
geti brugðist samstundis við því sem hann heyrir
nái inntaki ótextaðra kvikmynda, fylgist með atburðarás og geti í eyður þegar hann skilur ekki fullkomlega
skilji upplestur um kunnuglegt efni án þess að hafa heyrt textann áður
nái meginefni samræðna milli fjögurra manna

Málskilningur - lestur

lesi sífellt flóknari texta, nánar tiltekið
stutta skáldsögu eða smásögur
sífellt þyngri texta og texta með hjálp orðabóka og leiðandi spurninga um innihald texta
stuttar blaðagreinar
einfaldar fréttir

Tjáning - samskipti

geti haldið uppi einföldum samræðum við innfædda án erfiðleika og án þess að misskilningur hljótist af
geti tjáð sig um flest málefni úr nánasta umhverfi þótt nokkuð vanti upp á málfræðilega nákvæmni
geti tekið þátt í umræðum um kunnugleg efni
geti rætt um viðfangsefni sem tengt er námsefninu

Tjáning - talað mál

o geti skipst á skoðunum og rætt um efni þess sem hann hefur verið að lesa, nánar tiltekið
o endursagt efni stuttra greina
o endursagt efni léttra bókmenntaverka
o endursagt efni kvikmynda
o lýst viðbrögðum sínum
o tjáð sig áfallalítið um hversdagsleg efni
o rætt um andlega og líkamlega líðan annarra nemenda í öllum tíðum framsöguháttar og viðtengingarháttar
o notað orðasambönd á einfaldan máta til þess að lýsa upplifunum sínum og atburðum, löngunum og vonum
o gefið upp ástæður og útskýringar á skoðunum sínum og áætlunum

Tjáning - ritað mál

- fái markvissa þjálfun í ritun, t.d. í
o endursögnum og frásögnum í viðtengingarhætti og þátíðum
o bréfaskriftum
o stuttum ritgerðum um tiltekin efni
o þýðingum texta af ýmsum toga
o málfræðiæfingum

Menning

- vinni með efni af menningarlegum toga í kennslubók, auk ítarefnis
- vinni með hugmyndir sem koma upp í tímum og vekja sérstakan áhuga hans
- haldi fyrirlestur um valið efni fyrir samnemendur sína, t.d. um einstök lönd, einstakar listgreinar, stjórnmál, bókmenntir, sögu, hefðir í mat, kvikmyndir, sérstakan orðaforða, félagsleg vandamál, spillingu og fjölskyldugerð

Námsmat

Framfarir nemenda eru stöðugt metnar og tekið er tillit til allra færniþátta. Námsmati mætti haga þannig að 10% sé ritgerð, 20% munnleg færni (framsaga og munnlegt próf, þátttaka á spænsku í tímum), 20% málfræðiverkefni og 50% sé próf í annarlok.