Menntaskólinn Hraðbraut

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Áfangalýsing - JAR103

Jarðfræði 103 - JAR 103 Almenn jarðfræði – landmótun

Undanfarar: NÁT 113 og 123

Áfangalýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á meginatriði jarðfræði Íslands, tengsl uppruna landsins við landrek og landmótun af völdum innrænna og útrænna afla. Farið er í undirstöðuatriði steinda- og bergfræði og einnig kenningar um uppruna kviku og myndun mismunandi kvikugerða undir Íslandi.
Í áfanganum skal samtvinna bóklegt og verklegt nám þannig að hinn fræðilegi þáttur námsins tengist á eðlilegan hátt fjölbreyttum vettvangsrannsóknum sem og nýtingu nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni.

Áfangamarkmið

Nemandi
geri sér grein fyrir notagildi jarðfræðiþekkingar með íslenskar aðstæður að leiðarljósi
geti beitt öllum algengustu hugtökum og heitum í jarðfræði í umfjöllun sinni um myndun og gerð náttúrufyrirbæra
hafi þjálfun í að greina berg og steindir og geti út frá þeirri greiningu fjallað um og útskýrt
myndun bergs
myndun mismunandi gerða kviku
þekki helstu gerðir eldstöðva og geti skýrt mismunandi eldvirkni þeirra
geti útskýrt myndun mismunandi landsvæða af völdum innrænna afla, s.s. út frá landreki, eldvirkni, jarðskjálftum og jarðhita
geti fjallað um landmótun sem stjórnast af útrænum öflum, s.s. landmótun af völdum frostverkana, vatnsfalla, sjávar, jökla og vinds
geti gert grein fyrir mismunandi gerðum vatnsfalla og einkennum þeirra, s.s. rennslisháttum, landmótun og vatnasvæðum
geti fjallað um jökla og skýrt
myndun
gerð
hreyfingar
geti skýrt meginatriði mismunandi aðferða sem notaðar eru við jarðfræði- og jarðeðlisfræðilegar rannsóknir

Efnisatriði

Jarðsaga, jarðfræði Íslands, landrekskenningar, Ísland og landrekið, jarðskorpuhreyfingar, berg- og steindafræði, greining bergs og steinda, helstu bergtegundir, uppruni kviku, eldvirkni á Íslandi og annars staðar í heiminum, gosefni, umhverfisáhrif eldgosa, innri og ytri gerð jarðar, jarðskjálftar og jarðskjálftaspár, jarðskjálftabylgjur, tjón af völdum jarðskjálfta, leiðni-, þyngdar- og rafsviðsmælingar. Landmótun og veðrun, helstu gerðir veðrunar, veðrun á Íslandi, áhrif veðurfars á landmótun, mis-munandi rofvaldar, vatnsföllin, jöklarnir, hafið og vindurinn, landmótun einstakra svæða á Íslandi. Kort og jarðlagasnið.