Menntaskólinn Hraðbraut

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Áfangalýsing - STÆ703

Stærðfræði 703 - STÆ 703 Stærðfræðigreining

Undanfari: STÆ 603

Áfangalýsing

Fjallað er um rauntölur og fullkomleika þeirra, runur og raðir, föll, sér í lagi logra- og vísisföll, og notkun stærðfræðigreiningar við lausn á ýmsum hagnýtum verkefnum.
Gert er ráð fyrir að nemendur skili reglulega heimaverkefnum og skal lögð áhersla á skýra og skilmerkilega framsetningu.

Áfangamarkmið

Nemandi
hafi góðan skilning á rauntalnakerfinu og raunföllum, nánar tiltekið
átti sig á þeim grundvallareiginleikum sem greina rauntalnamengið frá öðrum helstu talnamengjum
geri sér grein fyrir að rauntalnamengið er ekki samstétta mengi ræðra talna
geri sér skýra grein fyrir markgildum falla, nánar tiltekið
geti unnið með e - d skilgreiningar á markgildi runu og falls
geti tengt efra og neðra mark við tilvist á markgildi runu undir vissum kringumstæðum
geti úrskurðað hvort gefin runa er samleitin
geti beitt þekktum prófum til að úrskurða um samleitni raðar
hafi öðlast leikni í að beita reglum um útreikning á markgildum, þar með töldum óeiginlegum markgildum
geri sér grein fyrir undirstöðueiginleikum samfelldra og deildanlegra falla, meðal annars
þekki helstu setningar varðandi samfelld og deildanleg föll
geti reiknað út Taylor-margliðu gefins falls
hafi staðgóða þekkingu á lografallinu, nánar tiltekið
kunni að skilgreina náttúrlegan logra sem stofnfall og þekki þá eiginleika fallsins sem með því fást
kunni að skilgreina náttúrlega vísisfallið sem andhverfu náttúrlega lograns
geti leitt út velda- og lograreglur út frá skilgreiningum fallanna og afleiður logra-, vísis- og veldisfalla
geti tekist á við stærðfræðileg verkefni af öryggi, nánar tiltekið
hafi öðlast leikni í ýmsum hagnýtum útreikningum, m.a. tölulegri heildun og skekkjumati
hafi öðlast skilning á tilvistarverkefnum, t.d. að ganga þurfi sérstaklega úr skugga um tilvist jöfnulausnar eða markgildis
geti sannað helstu setningar úr námsefninu

Efnisatriði

Grundvallareiginleikar talnakerfa, efra og neðra mark, fullkomleikafrumsendan, teljanleg og óteljanleg mengi. Runur, markgildi runu, raðir, samleitin röð, samleitnipróf, s.s. samanburðar¬próf, hlutfallspróf og rótarpróf. Veldaraðir, Taylor- og Maclaurin-raðir, Taylor-margliður, skekkjumat. Samfelld föll á lokuðum bilum, setning Bolzanos, milligildissetningin, setning Rolles, meðalgildissetningin og fylgisetningar um formerki á afleiðum. Mismunandi skilgrein¬ingar logra- og vísisfalla, útleiðsla á eiginleikum logra- og vísisfalla, ýmsar markgildisreglur, s.s. reglan um markgildi (logx) b/xa þegar x stefnir á óendanlegt, töluleg heildun og skekkjumat.  Hagnýt verkefni samkvæmt nánari ákvörðun kennara hverju sinni.

Námsmat

byggist á
verkefnum sem nemendur vinna í tímum og utan þeirra og skal lögð áhersla á skýra framsetningu
frammistöðu í kennslustundum og árangri á skyndiprófum
skriflegu prófi þar sem reynir á þekkingu á efnisatriðum, færni í beitingu stærðfræðilegrar tækni, skýra framsetningu, röksemdafærslu, skilning á röklegu samhengi og færni í að leysa verkefni