Íþróttir 211 - ÍÞR 211 Þjálffræði og áætlanagerð
Undanfari: ÍÞR 101 og 111
Áfangalýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á verklega og fræðilega þætti tengda skipulagi þjálfunar. Nemendur fá að gera eigin þjálfunaráætlun, auk þess sem fjallað er um líkamleg og sálræn áhrif þjálfunar. Farið er yfir helstu líffræðilegar forsendur þjálfunar, svo sem starfsemi vöðva, liða, tauga og blóðrásar. Fjallað er um gildi reglulegrar og skipulagðrar líkamsþjálfunar og nemendum gerð grein fyrir ábyrgð á eigin líkama. Í áfanganum er einnig fjallað um mismun einstaklingsíþrótta og hópíþrótta, komið inn á samvinnu og hópefli og réttan útbúnað til líkams- og heilsuræktar. Nemendur fá fræðslu um gildi þess að lifa heilbrigðu lífi og fá að kynnast möguleikum umhverfisins til líkams- og heilsuræktar. Nemendur verða hvattir til að tengja tölvu- og upplýsingatækni við skrásetningu upplýsinga og vinnu að áætlanagerð.
Áfangamarkmið
Íþróttir
Nemandi
glími við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu
leysi af hendi verkefni, æfingar og leiki sem viðhalda og bæta tækni ýmissa íþróttagreina
taki þátt í íþróttum og útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar, t.d. fyrir
gönguferðir
skíðaferðir
hjólreiðar
golf
Líkams- og heilsurækt
Nemandi
taki þátt í alhliða líkams- og heilsurækt
taki þátt í styrkjandi og mótandi æfingum fyrir helstu vöðva og liðamót líkamans
þjálfist í að nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
Félags-, tilfinninga- og siðgæðissvið
Nemandi
leysi af hendi æfingar og leiki sem viðhalda og bæta samskipti
taki þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til íþrótta líkams- og heilsuræktar
fái tækifæri til að greina frá afstöðu sinni til heilbrigðs lífsstíls
fái tækifæri til að greina frá afstöðu sinni til fyrirkomulags áfangans
Þekkingarsvið
Nemandi
leysi af hendi verkefni sem snýr að skipulagningu eigin þjálfunar
öðlist þekkingu á forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
öðlist grundvallarþekkingu á klæðnaði til útivistar af ýmsu tagi
öðlist færni í að nýta sér tölvu- og upplýsingatækni við skipulag þjálfunar
Efnisatriði
Skipulag þjálfunar, æfingaáætlun, langtímaáætlun, vikuáætlun, umhverfi, þjálfunarástand, þrekmælingar, viljastyrkur, einstaklingsbundin þjálfun, æfingadagbók, að byrja varlega, aðlögunartími, hæfilegt álag, þjálfunarpúls, spjallhraði, útbúnaður, hlaupaskór, æfingaklæðnaður, vökvajafnvægi, blóðsykur, líffræðilegar forsendur þjálfunar, áhrif þjálfunar á líkamann, heilbrigður lífsstíll.
Námsmat
Sjá námskrá menntamálaráðuneytisins.


