Menntaskólinn Hraðbraut

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Áfangalýsing - TÖL103

Tölvufræði 103 - TÖL 103 Inngangur að forritun

Undanfari: enginn

Áfangalýsing

Farið er í helstu þætti í sögu og þróun nútímaforritunar. Í áfanganum munu nemendur fá undirstöðuþjálfun í forritun í hlutbundnu forritunarmáli. Lögð verður áhersla á  að nemendur temji sér öguð og viðurkennd vinnubrögð við greiningu, hönnun og prófun tölvuforrita. Sérstök rækt verði lögð við að nemendur átti sig á hlutverki stýrikerfa við hönnun hugbúnaðar, m.a. við hönnun staðlaðs notendaviðmóts.

Áfangamarkmið

Nemandi
- hafi þekkingu á sögu forritunar og helstu atriðum sem marka tímamót
- geti beitt greiningu og hönnun við undirbúning forritunar
- geti skipulagt tög og uppbyggingu forrita með föllum og stefjum
- geti forritað með skilyrðum, lykkjum, föllum og stefjum
- setji upp frumgerð forrits sem lýsir samskiptum manns og tölvu
- geti beitt viðurkenndum stöðlum um notendaviðmót
- geti metið hvernig best er að greina, hanna og forrita einfaldari forrit

Efnisatriði/kjarnahugtök

Forritun

Breytur: gildisgjöf, staðværar breytur og klasabreytur, færibreytur, gildisbreytur og bendar og hlutir.
Tög: heiltölur, kommutölur, rökbreytur, strengir, fylki og tilbúin tög; að breyta úr einni tegund í aðra (m.a. tölum í strengi og öfugt).
Aðgerðir: heiltöluaðgerðir, m.a. módular, helstu kommutöluaðgerðir, rökaðgerðirnar AND, OR, NOT, XOR; forgangsröð aðgerða.
Flæði aðgerða: skilyrði og röksegðir, endurtekning og slaufur (bæði með teljara og skilyrði).
Verkþættir og skipulag: undirforrit, klasar, erfðir.
Reiknirit: framsetning þeirra og ritun skýringa í forritskóða.
Prófanir: villuleit, prófunarskýrsla.

Hugtök og þekkingaratriði

Stærð gagna í bitum og bætum, tvíundakerfi, tugakerfi og sextándakerfi, munurinn á véla¬málum og æðri forritunarmálum, saga forritunar, s.s. smalamál, fyrstu forritunarmálin, mótuð mál og hlutbundin, einkenni algengra forritunarmála, þ. á m. BASIC, Pascal, C, C++ og Java, þýðendur, túlkar, kembi-forrit, hlutverk stýrikerfis: úthlutun vélar og einföldun, samræmd notendaskil, víxlvinnsla, hvernig forrit nýta þjónustu stýrikerfis m.a. við gerð notendaskila.

Námsmat

Getur farið fram með skyndiprófum, verkefnaskilum og lokaprófi ef það er talið nauðsynlegt.