Forritun 103 - FOR 103 Forritun og vefsíðugerð
Áfangalýsing
Farið er í helstu grunnatriði í ritun HTML vefsíðna, tengingar þeirra innbyrðis, gagnvirkni og uppsetningu auk þess sem nemendur læra forritun í HTML og CSS. Viðmótshönnun er skoðuð út frá markvissri uppsetningu, beitingu texta, mynda og lita. Farið er í helstu reglur og staðla í framsetningu efnis á Internetinu. Farið er í hönnunarferli lokaverkefnis, frá markmiðasetningu, skipulagningu, útlitstillögum og verkáætlun að hönnun, forritun, þróun og viðhaldi vefsins. Nemendur þjálfast í að koma eigin hugmyndum á vefsíðuform.
Áfangamarkmið
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- Hugtökunum vefsíða, vefur og einföld forritun
- Þeim verkfærum sem eru notuð til að smíða vefsíður. Uppbyggingu og eðli HTML skipana og þeim breytum sem þeim fylgja
- Þeim HTML skipunum sem eru notaðar til að búa til vefsíður
- Hvernig nota á CSS til að vinna með útlit og umgjörð vefsíðna
- Þeim CSS skipunum sem algengastar eru
- Viðmótshönnun, uppbyggingu og skipulagi vefsíðna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Beita HTML skipunum til að koma texta og myndum á vefsíður
- Skipta efni vefsíðna í einingar með HTML og móta útlit þeirra með CSSHugsa um ritun vefsíðna sem einfalda forritu.
- Búa til vefsíður eftir fyrirmynd
- Hanna útlit á vefsíðum og koma því í framkvæmd með CSS skipunum
- Gera áætlanir út frá markmiðum og smíða vefsíðu í framhaldi af því
- Skipuleggja vefsíður til að koma efni til skila á vefinn á áhrifaríkan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Smíða vefsíður frá grunni
- Koma efni og myndum á framfæri á vefsíðu
- Tengja saman vefsíður til að búa til vefi
- Geta viðhaldið og breytt eldri vefsíðum og bætt nýju efni við
- Gert einfalda hugmynd að vel útfærðri vefsíðu
- Hanna viðmót á vefsíðum
- Setja upp og skipuleggja vefsíður
Námsmat
Námsmat byggst á verkefnavinnu.