Menntaskólinn Hraðbraut

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Námið

Sérstaða og fyrirkomulag kennslu
Skipulag skólans er með öðru móti en almennt gerist í skólum á framhaldsskólastigi. Skólinn sameinar ákveðna kosti þeirra skólakerfa sem fram til þessa hafa verið ráðandi, það er hins hefðbundna bekkjarkerfis og áfangakerfis.
Eitt af einkennum skólans er að hann starfar á grundvelli bekkjarkerfis að því leyti til að nemendur fylgja að mestu sama nemendahópnum frá upphafi skólaársins til enda. En skólinn er að því leyti byggður á áfangakerfi að námsárinu er skipt í lotur og nemendur ljúka ákveðnum áföngum í hverri lotu. Lotur eru 7-8 á hvoru skólaári.


Námsfyrirkomulag
Námið allt fer fram í 15 lotum sem hver er sem næst sex vikur að lengd.
Kenndir eru þrír þriggja eininga áfangar í senn. Hver lota er fjórar vikur í kennslu og síðan taka við próf í eina viku. Að því loknu er hlé í eina viku, nema nemandi hafi ekki staðist próf. Nemendur ljúka því 9 einingum í hverri lotu.


Kennslutími í hverri viku
Kennslutími er þannig að kennt er þrjá daga í viku: mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Kennt er hvern þessara daga frá kl. 8:30 - 16:05. Farið er hratt yfir námsefnið og því brýnt að nemendur vinni samviskusamlega við námið. Sérstök áhersla er lögð á að hafa allar kennslustundir nákvæmlega skipulagðar. Hver kennslustund er 60 mínútur.


Námsvinna í skólanum
Þá daga vikunnar sem ekki er skipulögð kennsla, hafa nemendur einnig mætingarskyldu. Þá vinna nemendur „heimavinnuna“ sína, þ.e. þá námsvinnu sem nemendur eiga að vinna á milli kennslustunda og nemendur annarra framhaldsskóla eiga að vinna heima hjá sér.
Vinnuaðstaða er fyrir nemendur þessa daga í kennslustofum skólans. Í stofunum er yfirsetuaðili til þess að tryggt sé að góður vinnufriður haldist. Einnig býðst nemendum hjálp við heimanám þessa daga. Sú þjónusta er veitt af kennurum skólans.
Auk framangreindrar námsvinnu í skólanum geta nemendur búist við að þurfa að vinna nokkra heimavinnu í einstökum áföngum.


Einingar
Nám til stúdentsprófs í Menntaskólanum Hraðbraut er 136 einingar og er fullgilt með þeim réttindum til áframhaldandi náms sem stúdentspróf veitir. Þarfir og kröfur háskólasamfélagsins eru hafðar til hliðsjónar samsetningu námsins innan þess ramma sem námskrá menntamálaráðuneytisins setur.