Innritun
Umsækjendur þurfa að fylla út umsókn. Æskilegt er að allir umsækjendur skili afriti af grunnskólaeinkunnum. Æskilegt er að eldri nemendur skili afriti af grunnskólaeinnkunnum, þeim einkunnum sem þeir hafa fengið úr öðrum framhaldsskólum og stuttri greinargerð um lífshlaup og störf á vinnumarkaði.
Nemendum, sem stunda nám við Menntaskólann Hraðbraut, eða forráðamanni þeirra sem eru yngri en 18 ára, gefst kostur á skólagjaldaláni hjá Arion banka í Garðabæ til greiðslu skólagjalda. Lánið er í formi yfirdráttar sem greiðist upp með skuldabréfi í námslok. Engin lántökukostnaður eða stimpilgjöld falla á námstímanum og engar afborganir þarf að greiða fyrr en að námi loknu eða eftir samkomulagi.
Arion banki www.arionbanki.is
Garðatorgi 5
210 Garðabær
Sími 580-2600
Athugið vel:
- Umsóknum nemenda fylgi staðfest ljósrit af grunnskólaprófi.
- Umsóknum nemenda sem eru að flytja sig á milli framhaldsskóla fylgi staðfest útskrift af fyrra námi.
- Tilkynningu Menntaskólans Hraðbrautar um skólavist fylgir gíróseðill. Mikilvægt er að hann sé greiddur á tilsettum tíma. Dráttur á greiðslu getur valdið því að nemandi missi af skólavist.
- Skólagjöld verða ekki endurgreidd eftir að skólastarf hefst, hver sem ástæða endurgreiðslubeiðni er.
- Nemendur sem eiga við lestrarerfiðleika að stríða þurfa að hafa samband strax við námsráðgjafa Menntaskólans Hraðbrautar.


