Til þess að nemandi geti fengið inngöngu í Menntaskólann Hraðbraut verður hann/hún að uppfylla eftirfarandi kröfur:
- Hafa lokið grunnskólaprófi og hlotið sem næst 6,0 eða hærri meðaleinkunn á lokaprófum í íslensku, ensku og stærðfræði. Skólinn skoðar einnig aðrar einkunnir og einkunnir sem víkja frá þessum kröfum, sér í lagi ef skólaeinkunnir eru góðar eða sérstakar ástæður eru til.
- Hafi aðgang að tölvu til nota við heimanám. Æskilegt er einnig að nemandi hafi fartölvu til afnota í skólanum. Slíkur búnaður léttir starf nemenda. Í einstaka námskeiðum er nauðsynlegt að hafa með sér fartölvu.
Nám í skólanum og heimavinna mun taka mið af þessari kröfu og skólinn er búinn háhraða internettengingu til afnota fyrir nemendur. Tölvusamskipti nemenda og kennara eru mikil. - Greiða skólagjöld í samræmi við reglur skólans þar um.
Menntaskólinn Hraðbraut áskilur sér rétt til að hafna umsóknum einstakra nemenda um skólavist án sérstakra skýringa.


