Menntaskólinn Hraðbraut

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Námsmat og einkunnir

Námsmat
Námsmat fer fram með mismunandi hætti eftir áföngum. Það getur verið fólgið í prófi í lok yfirferðar yfir námsefni áfangans og/eða samfelldu mati á vinnu nemandans á meðan á námi stendur. Ennfremur í lausn sérstakra verkefna. Skólasókn er metin til einkunnar í öllum áföngum.

Í upphafi hverrar annar er nemendum kynnt kennsluáætlun og námsmarkmið, svo og tilhögun námsmats í hverjum áfanga. Aðferðir við námsmat byggjast á námskrá menntamálaráðuneytisins. Kennarar meta úrlausnir nemenda.
Að loknu prófi eiga nemendur þess kost að skoða prófúrlausnir sínar í viðurvist kennara innan viku frá afhendingu einkunna. Ef fram kemur skekkja í mati eða einkunnagjöf skal slíkt leiðrétt. Komi upp ágreiningur milli nemenda og kennara um mat úrlausnar skal skólastjórn kveðja til prófdómara til þess að fara yfir úrlausnina. Úrskurður prófdómara skal gilda. Við úrlausn umfangsmikilla og alvarlegra ágreiningsefna getur skólastjórn skipað nefnd þriggja prófdómara. Úrskurður meirihluta þeirra skal gilda.

Einkunnagjöf
Einkunnir skulu gefnar í heilum tölum frá 0 til 10 og skal hafa eftirfarandi til hliðsjónar:
10 táknar að 95 - 100% markmiða hefur verið náð
9 táknar að 85 - 94% markmiða hefur verið náð
8 táknar að 75 - 84% markmiða hefur verið náð
7 táknar að 65 - 74% markmiða hefur verið náð
6 táknar að 55 - 64% markmiða hefur verið náð
5 táknar að 45 - 54% markmiða hefur verið náð
4 táknar að 35 - 44% markmiða hefur verið náð
3 táknar að 25 - 34% markmiða hefur verið náð
2 táknar að 15 - 24% markmiða hefur verið náð
1 táknar að 5 - 14% markmiða hefur verið náð
0 táknar að 0 - 4% markmiða hefur verið náð

Til að standast próf í áfanga þarf einkunnina 5.

Mat á námi úr öðrum skólum
Nám sem nemendur hafa lokið í öðrum skólum verður metið eftir gögnum frá viðkomandi skóla.

Reglur um mat á fyrra námi
Markmiðið er að meta nám til eininga og fella það að því kerfi sem er í Menntaskólanum Hraðbraut. Matshæft nám telst: Nám sem byggir á grunnskólaprófi eða hliðstæðu námi, hefur skilgreint markmið og lýkur með námsmati og fullnægjandi árangri.
Nám í Menntaskólanum Hraðbraut er metið í einingum með svipuðum hætti og gert er í öðrum áfangaskólum. Áfangaheiti og númer skal síðan skrá eftir því námsefni sem nemandinn hefur lokið.
Leiki vafi á um kunnáttu nemenda eða erfiðleikar eru taldir á sanngjörnu mati getur skólinn hafnað því að meta nám eða gert nemandanum að taka stöðupróf í námsgreininni.
Mat á fyrra námi skal liggja fyrir áður en nemandi hefur nám í skólanum. Endanlegt úrskurðarvald um hvort meta skuli nám er hjá skólanum.