Menntaskólinn Hraðbraut

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Námsskipan

Námsframboð skólans miðast við tvær brautir, stúdentspróf á náttúrufræðibraut og stúdentspróf á málabraut, eins og þessar brautir eru skilgreindar í námskrá menntamálaráðuneytisins.

Sérstök athygli er vakin á:
Að vegna smæðar skólans og þess hvernig uppbyggingu starfsins er háttað er nemendum yfirleitt ekki veitt svigrúm til vals á námsgreinum með sama hætti og oftast er í framhaldsskólum. Námið er mun bundnara og valkostir í námi við skólann felast aðallega í því að velja annað hvort náttúrufræðibraut eða málabraut.

Staða nemenda að námi loknu
Að námi loknu munu nemendur hafa lokið stúdentsprófi og öðlast öll þau réttindi sem sambærilegt próf veitir úr öðrum framhaldsskólum. Nám við Menntaskólann Hraðbraut er 136 einingar samkvæmt námskrá menntamálaráðuneytisins.
Nám til stúdentsprófs samkvæmt námskrá menntamálaráðuneytisins er 140 eininga nám á 8 önnum. Þar er miðað við að nemendur taki eina einingu í íþróttum á hverri önn, alls 8 einingar. Nám í Hraðbraut er einungis 4 annir og því er miðað við að nemendur taki 4 einingar í íþróttum.

Skipulag skólans
Skipulag skólans er með öðru móti en almennt gerist í skólum á framhaldsskólastigi. Skólinn sameinar ákveðna kosti þeirra skólakerfa sem fram til þessa hafa verið ráðandi, þ.e. hins hefðbundna bekkjarkerfis og áfangakerfis. Eitt af einkennum skólans er að hann starfar á grundvelli bekkjarkerfis að því leyti að nemendur fylgja að mestu sama nemendahópnum frá upphafi skólaársins til enda. En skólinn er að því leyti byggður á áfangakerfi að námsárinu er skipt í lotur og nemendur ljúka ákveðnum áföngum í hverri lotu. Lotur eru 7-8 á skólaárinu.

Námsfyrirkomulag
Námið allt fer fram í 15 lotum, hver þeira er sem næst sex vikur að lengd. Kenndir eru þrír þriggja eininga áfangar í senn. Hver lota er fjórar vikur í kennslu og síðan taka við próf sem taka eina viku. Að því loknu er hlé í eina viku, nema nemandi hafi ekki staðist próf. Nemendur ljúka því oftast 9 einingum í hverri lotu.


Kennslutími í hverri viku
Kennslutími er þannig að kennt er þrjá daga í viku, þ.e. mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Kennt er hvern þessara daga frá kl. 8:30 - 16:05.
Farið er hratt yfir námsefni og því brýnt að nemendur vinni samviskusamlega við nám sitt. Sérstök áhersla er lögð á að hafa allar kennslustundir nákvæmlega skipulagðar. Hver kennslustund er 60 mínútur.

Námsvinna í skólanum
Þá daga vikunnar sem ekki er skipulögð kennsla, hafa nemendur einnig mætingarskyldu. Þá vinna nemendur „heimavinnuna“ sína, þ.e. þá námsvinnu sem nemendur eiga að vinna á milli kennslustunda og nemendur annarra framhaldsskóla eiga að vinna heima hjá sér. Góð vinnuaðstaða er fyrir nemendur þessa daga í kennslustofum skólans. Í stofunum er eftirlitsaðili til að tryggt sé að góður vinnufriður haldist. Einnig býðst nemendum hjálp við heimanám þessa daga. Sú þjónusta er veitt af kennurum skólans og aðstoðarfólki þeirra. Auk framangreindrar námsvinnu í skólanum geta nemendur búist við að þurfa að vinna nokkra heimavinnu.