Sandra Þóroddsdóttir er starfandi námsráðgjafi við skólann.
Námsráðgjafi sinnir einnig starfi forvarnarfulltrúa.
Viðtalstími námsráðgjafa og forvarnarfulltrúa er eftirfarandi:
| Vika | mán | þri | mið | fim | fös |
| 1 | 8:30 - 16:00 | 8:30 - 16:00 | 8:30 - 12:00 | 8:30 - 16:00 | 8:30 - 12:00 |
| 2 | 8:30 - 16:00 | 8:30 - 16:00 | 8:30 - 16:00 | 8:30 - 12:00 | |
| 3 | 8:30 - 16:00 | 8:30 - 16:00 | 8:30 - 16:00 | 8:30 - 12:00 | |
| 4 | 8:30 - 16:00 | 8:30 - 16:00 | 8:30 - 12:00 | 8:30 - 16:00 | 8:30 - 16:00 |
| 5 | 8:30 - 12:00 | 8:30 - 12:00 | 8:30 - 12:00 | ||
| 6 | 8:30 - 14:00 | 8:30 - 12:00 | 8:30 - 15:00 |
Nemendur geta pantað tíma á skrifstofu eða komið á ofangreindum tímum. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Hlutverk námsráðgjafa er:
Fyrirbyggjandi: Námsráðgjöf miðar að því að öllum nemendum líði sem best í skólanum. Nemendur hafa greiðan aðgang að trúnaðarmanni sem getur veitt aðstoð sama hvert erindið er.
Græðandi: Námsráðgjafi er málsvari nemenda. Námsráðgjafi veitir aðstoð í persónulegum málum sem hafa áhrif á nám. Námsráðgjafi er trúnaðarmaður nemenda og sem slíkur bundinn þagnarskyldu. Þagnarskyldu þessa má þó rjúfa ef námsráðgjafi telur að að nemandanum steðji hætta.
Fræðandi: Námsráðgjafi miðlar upplýsingum um nám og störf til nemenda. Einnig geta nemendur tekið áhugasviðskönnun hjá námsráðgjafa.
Þroskandi: Námsráðgjafi stuðlar að aukinni sjálfsábyrgð nemenda. Í því felst að gera nemendur meðvitaðri um eigin stöðu og möguleika í námi og starfi.
Netfang námsráðgjafa er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


