Mælst er til þess að nemendur við Menntaskólann Hraðbraut séu með eigin fartölvur í skólanum. Það er þó ekki skilyrði fyrir skólavist.
Nemendum gefst kostur á að tengjast þráðlausu neti sem nær um allt húsnæði skólans. Einnig gefst nemendum kostur á að tengjast prentara sem er staðsettur á skrifstofu skólans.
Þjónusta við nemendur með fartölvur er veitt á skrifstofu skólans á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 10:00 til 12:00.


