Menntaskólinn Hraðbraut

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Stjórn skólans

Skólastjórn
Skólastjórn er skipuð fjórum aðilum sem munu gæta hagsmuna nemenda, starfsmanna, foreldra og eigenda. Hlutverk skólastjórnar er að marka áherslur í starfi skólans. Hún gerir árlega starfsáætlun fyrir skólann í samráði við skólastjóra. Skólastjórnin fylgist jafnframt með því að starfsáætluninni sé framfylgt og er að auki skólastjóra til aðstoðar við stjórnun skólans.

Stjórn skólans skipa:
Pétur Björn Pétursson hagfræðingur, formaður
Höskuldur Ásgeirsson viðskiptafræðingur, varaformaður
Helga Guðrún Johnson blaðamaður
Bjarni Jónsson ljósmyndari
Varamaður: Benedikt Sveinsson forstjóri


Skólastjóri
Skólastjóri er Ólafur Haukur Johnson. Hann ber ábyrgð á starfi og rekstri skólans og sér um að lögum og reglugerðum sé fylgt. Hann ber ábyrgð á áætlanagerð, framkvæmdum og fjármálum skólans og ákveður nemendagjöld í samráði við skólastjórn. Hann ræður kennara og aðra starfsmenn skólans. Hann hefur yfirumsjón með gæðastjórnun innan skólans, starfi nemenda, kennara og annarra starfsmanna. Skólastjóri hefur kennsluréttindi á framhaldsskólastigi.