Menntaskólinn Hraðbraut

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Lög foreldrafélagsins

Foreldrafélag Menntaskólans Hraðbrautar

Lög félagsins

1. grein. Heiti, aðsetur og félagsaðild

Félagið heitir Foreldrafélag Menntaskólans Hraðbrautar. Aðsetur þess er í Mennta­­skólanum Hraðbraut, Faxafeni 10 í Reykjavík. Allir foreldr­ar­/for­ráða­menn nem­enda við skólann eru sjálfkrafa félagsmenn.

2. grein. Tilgangur, markmið og leiðir

Tilgangur félagsins er að vinna að bættu skólastarfi og að bættum möguleikum nem­enda Menntaskólans Hraðbrautar til menntunar og þroska.

Markmiðum sínum hyggst félagið ná fram með því að:

  • Að vera samráðs- og samstarfsvettvangur foreldra/forráðamanna.
  • Stuðla að aukinni vitund foreldra/forráðamanna um forsjárskyldur sínar og vekja athygli þeirra á réttindum og skyldum þeirra sjálfra og barna þeirra.
  • Tryggja öflugt og gott samstarf foreldra/forráðamanna, nemenda og starfs­fólks skólans.
  • Að vera bakhjarl skólans og auka áhrif foreldra/forráðamanna sem hagsmuna­hóps um bættan hag og stöðu skólans.
  • Hvetja til aukins stuðnings, aðhalds og hvatningar foreldra/forráðamanna við börn sín og nám þeirra.

3. grein. Aðalfundur

Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Hann skal halda árlega á tímabilinu 16. september til 31. október. Til fundarins skal boðað bréflega með dagskrá (í gegn­um nem­endur) með a.m.k 7 daga fyrirvara. Aðalfundur félagsins er löglegur ef löglega er til hans boðað. Dagskrá aðalfundar skal vera:

a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.

b) Skýrsla stjórnar um störf hennar og starfsemi félagsins.

c) Umræður um skýrslu stjórnar.

d) Breytingar á samþykktum félagsins.

e) Starfsáætlun lögð fram til kynningar og afgreiðslu.

f) Kosning í stjórn félagsins.

4. grein. Stjórn félagsins

Stjórn félagsins skipa þrír foreldrar/forráðamenn nemenda við skólann sem kosnir eru á aðalfundi auk eins varamanns. Formaður skal kosinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í einu lagi og skipta þeir með sér verkum. Stjórn félagsins stýrir félaginu í umboði aðalfundar í samræmi við tilgang og samþykkir félagsins. Stjórnin skal halda gerðarbók þar sem öll mál sem tekin eru fyrir eru bókuð sem og allar ákvarðanir stjórnar. Einfaldur meirihluti stjórnarmanna ræður úrslitum í atkvæðagreiðslum stjórnar.

5. grein. Breytingar á lögum félagsins

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi félagsins. Tillögur að breytingum þurfa að berast stjórn félagsins ekki síðar en 10 dögum fyrir auglýstan aðalfund. Breytingartillögur skal kynna um leið og boðað er til aðalfundar og á sama hátt.

Upplýsingar um dagsetningu aðalfundar skulu liggja fyrir eigi síðar en 1. september.

Lög þessi taka þegar gildi.

 

 

Skóladagatal

<<  September 10  >>
 Mán  Þri  Mið  Fim  Fös  Lau  Sun 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9101112
13141516171819
20212223242526
27282930