Menntaskólinn Hraðbraut

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Algengar spurningar

{moshide hidden Af hverju er mikil áhersla á stærðfræði?} Nám á háskólastigi, utan tungumálanáms, krefst yfirleitt undirstöðu í aðferðafræði sem samanstendur meðal annars af tölfræði og líkindareikningi. Góður stærðfræðigrunnur léttir mjög undir hjá þeim nemendum sem eru að stíga sín fyrstu skref í háskólanámi. Nemendur sem útskrifast úr Hraðbraut eru vel í stakk búnir til að takast á við krefjandi háskólanám.
Nemendur sem stefna á nám í raunvísindum, svo sem læknisfræði, náttúrufræði eða verkfræði fá framúrskarandi grunn á náttúrufræðibraut Hraðbrautar. Þar eru sjö kjarnastærðfræðiáfangar auk tveggja tölfræðiáfanga sem eru nemendum gott veganesti til frekara náms.{/moshide}
{moshide hidden Af hverju er mikil áhersla á íslensku og tjáningu?} Færni í skýrri tjáningu og vandaðri framsetningu ritaðs og talaðs máls er mikils virði. Árangur í námi og starfi hvílir að góðum hluta á hæfni í að koma efni frá sér á skýran og skilmerkilegan hátt. Sá grunnur sem mikil áhersla á íslensku og tjáningu á báðum brautum veitir fylgir nemendum löngu eftir að öllu námi lýkur.{/moshide}
{moshide hidden Er virkilega hægt að ljúka stúdentsprófi á tveimur árum?} Já það er hægt. Ástæðan fyrir því að við getum fullyrt það er að við höfum þrautreynt námsfyrirkomulagið í nokkur ár í Hraðbraut og þar á undan í 10 ár í Sumarskólanum, sem lengst af hefur starfað í Háskóla Íslands. Hraðbraut hefur þegar útskrifað tvo árganga stúdenta. Með námsárangri þeirra er fylgst. Greinilegt er að skipulögð námsvinnubrögð sem þeir hafa tamið sér í Hraðbraut reynast þeim vel þegar í háskólanám er komið.
Nám við Menntaskólann Hraðbraut er lagað að þörfum duglegra og metnaðarfullra námsmanna. Um langt árabil var námsþörfum slíkra nemenda ekki sinnt í menntakerfinu og allir nemendur sveigðir undir sama fjögurra ára fyrirkomulagið. Meiri sveigjanleika hefur gætt í seinni tíð þar sem sums staðar er möguleiki á að ljúka námi til stúdentsprófs á þremur árum en aldrei fyrr hefur gefist kostur á tveggja ára námi. Menntaskólinn Hraðbraut var stofnaður gagngert til að þjóna þörfum þeirra nemenda sem hafa metnað og vilja til að fá eins góðan undirbúning fyrir háskólanám og völ er á. Þessi skarpa sýn teljum við að geri skólanum kleift að sinna þessum nemendum betur en aðrir skólar eru færir um.{/moshide}
{moshide hidden Er Hraðbraut fyrir alla?} Nei, Menntaskólinn Hraðbraut miðar sérstaklega að því að sinna þörfum duglegra og metnaðarfullra nemenda sem vilja ljúka stúdentsprófi á sem skömmum tíma. Þeir komast þannig fyrr í það sérnám á háskólastigi sem hugur þeirra stendur til. Tími slíkra nemenda nýtist illa í hefðbundnu framhaldsskólanámi og þjálfun í öguðum vinnubrögðum sem mikið reynir á í háskólanámi hefur ekki verið fullnægt sem skyldi fyrir þennan hóp. Í Hraðbraut fá duglegir nemendur góða þjálfun í skipulegum og markvissum vinnubrögðum sem er dýrmætt veganesti fyrir framtíðina.
Nemendur eru eins misjafnir og þeir eru margir og Hraðbraut er til að þjóna og uppfylla óskir þeirra nemenda sem eru metnaðarfullir, duglegir og drífandi.{/moshide}
 

Skóladagatal

<<  September 10  >>
 Mán  Þri  Mið  Fim  Fös  Lau  Sun 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9101112
13141516171819
20212223242526
27282930