Um skólann
Menntaskólinn Hraðbraut er framsækinn valkostur fyrir metnaðarfulla nemendur. Skólinn er ætlaður duglegu námsfólki sem er tilbúið að vinna markvisst í skemmtilegu námsumhverfi.
Skólinn tók til starfa haustið 2003 en byggir á kennsluformi sem hefur verið þrautreynt í rúm 10 ár. Skólinn býður nám til stúdentsprófs á tveimur árum á náttúrufræðibraut og málabraut.
Skólinn er til húsa að Faxafeni 10 í húsi Framtíðarinnar.
Námsframboð
Menntaskólinn Hraðbraut býður tvær námsbrautir, náttúrufræðibraut og málabraut.
Áfangalýsingar eru samkvæmt námskrá menntamálaráðuneytisins. Við ákvörðun á námsbrautum og námsgreinum er samsetningunni hagað þannig að námið veiti sem bestan undirbúning undir fjölbreytt nám á háskólastigi. Sérstök ástæða er til að vekja athygli á þeirri áherslu sem lögð er á tjáningu, ensku og stærðfræði en sú áhersla leggur traustan grunn að góðri framhaldsmenntun.
Vegna smæðar skólans og þess hvernig uppbyggingu er háttað er nemendum ekki veitt svigrúm til vals á námsgreinum með sama hætti og oftast er í framhaldsskólum. Námið er bundnara og valkostir í námi við skólann felast aðallega í að velja annaðhvort náttúrufræðibraut eða málabraut.
Staða nemenda að námi loknu
Að námi loknu hafa nemendur lokið stúdentsprófi og öðlast öll þau réttindi sem slíkt próf veitir.
Eigandi
Menntaskólinn Hraðbraut er rekinn af Hraðbraut ehf, kt. 490403-2210
Skólastjóri
Skólastjóri er Ólafur Haukur Johnson.
Sími
565-9500
Fax
565-9501
Tölvupóstur
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Tölvupóstur Ólafs Hauks Johnson, skólastjóra
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Tölvupóstur Sigríðar Þrúðar Stefánsdóttur, aðstoðarskólastjóra
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


